Landsliðsmarkvörðurinn áfram á Ásvöllum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Sif Helgadóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

Landsliðsmarkvörðurinn, Sara Sif Helgadóttir hefur framlengt samningi sínum við Hauka. Haukar tilkynna þetta á samfélagsmiðlum sínum nú í morgunsárið á konudeginum sjálfum en hvergi kemur þó fram hversu langur nýr samningur Söru Sifjar við Hauka er.

Sara Sif er á sínu öðru tímabili með Haukum en hún gekk í raðir félagsins frá Val sumarið 2024. Hún er uppalin hjá Fjölni en hefur einnig spilað með HK, Fram og Val.

,,Sara hefur verið á meðal fremstu leikmanna liðsins og er þekkt fyrir ótrúlegan kraft og sigurhugarfar inni á vellinum. Að halda í leikmann eins og Söru Sif er gríðarlega mikilvægt fyrir liðið — hún er leiðtogi innan sem utan vallar," segir í tilkynningunni frá Haukum.

„Ég er mjög spennt fyrir framhaldinu og hlakka til að halda áfram að berjast fyrir félagið. Við erum með frábæran hóp og markmiðin skýr,“ segir Sara Sif.

Sara Sif verður í eldlínunni í undanúrslitum Powerade-bikarsins í vikunni en Haukar mæta Fram í undanúrslitum bikarsins á miðvikudaginn. Valur og KA/Þór mætast í hinum undanúrslitaleik keppninnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top