Anton Rúnarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
,,Þetta er frábær tilfinning. Við erum mjög sáttar með það að vera komnar í úrslitin," sagði Anton Rúnarsson þjálfari Vals eftir sjö marka sigur liðsins á KA/Þór í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld. Valur vann leikinn 29-22 eftir að hafa verið 16-13 yfir í hálfleik. ,,Við byrjuðum leikinn nokkuð vel en síðan kom smá kafli þar sem við vorum að flýta okkur of mikið og mistök og fleira sem var ekki nægilega gott. Varnarleikurinn datt einnig niður en við náðum að laga það aðeins í hálfleik og spiluðum betur í seinni hálfleik." Valur mætir Haukum í bikarúrslitunum á heimavelli Hauka á Ásvöllum á laugardaginn. Anton er ekki mikið að spá í því hvar leikurinn fer fram. ,,Þetta er eins og hver annar bikarúrslitaleikur þó svo að þetta sé hérna. Við förum bara í þann leik og ætlum okkur að sjálfsögðu að vinna hann. Þetta er bikarúrslit og það segir sig sjálft," sagði Anton meðal annars sem biður um heilsteypta frammistöðu frá sínu liði í leiknum á laugardag. Anton var einnig spurður út í stöðuna á liðinu og þá sérstaklega Theu Imani Sturludóttur sem var í litlu hlutverki í leiknum í dag. Viðtalið við Anton er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.