Íslendingarnir í Frakklandi og á Ítalíu, Sveinn Jóhannsson og Ólafur Brim Stefánsson þurftu að sætta sig við töp í gærkvöldi með sínum félagsliðum. Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Chambéry í frönsku úrvalsdeildinni þegar liðið tapaði fyrir Montpellier 35-31 á heimavelli. Montpellier voru þremur mörkum yfir í hálfleik 16-19 en Montpellier var yfir allan leikinn að undanskildu þegar staðan var jöfn í stöðunni 0-0 og 1-1. Montpellier er í 3.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 29 stig en Chambéry er í 6.sætinu með 20 stig. Bæði lið hafa leikið 18 leiki á tímabilinu en tólf umferðir eru eftir. Ólafur Brim Stefánsson gekk í raðir Junior Fasano frá Stjörnunni um áramótin en hann hefur farið vel af stað með ítalska liðinu í upphafi árs. Liðið tapaði hinsvegar í gær í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar gegn Albatro Siracusa 31-29 á útivelli. Ólafur Brim lagði sitt á vogarskálirnar og skoraði fimm mörk í leiknum en Junior Fasano var tveimur mörkum yfir í hálfleik 16-14. Abattoir og Fasano eru í 3. og 4.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 23 og 22 stig og það var því vitað fyrirfram að um hörkuleik væri um að ræða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.