Hjartað mitt er að springa
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Thea Imani Sturludóttir átti frábæra innkomu í úrslitaleik Vals og Hauka í dag er Valur vann ótrúlegan endurkomu sigur 23-19 eftir að hafa verið 14-18 undir þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum.

Thea Imani hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og mánuði en kom með gríðarlega mikilvæga innkomu inn í lið Vals í seinni hálfleik sem hjálpaði liðinu að koma sér upp úr þeirri holu sem liðið var komið í.

,,Tilfinningin er geggjuð. Þetta sat í manni eftir tapið í fyrra í undanúrslitunum en þetta er ógeðslega skemmtilegt," sagði Thea í viðtali við Handkastið eftir sigurinn.

,,Hjartað mitt er að springa, ég var með svo hraðan hjartslátt á bekknum. Þetta var jafn leikur og það er alltaf verra að horfa á leikinn þróast heldur en að vera inná. En stelpurnar stóðu sig mjög vel þannig ég var bara góð."

Thea lék ekkert í leiknum í fyrri hálfleik og kom í vörn Vals í seinni hálfleik. Þegar ekkert gekk upp sóknarlega hjá Val í stöðunni 14-18 kom Thea inn í sóknarleik Vals og hafði jákvæð áhrif á liðið.

,,Planið snerist ekkert um það hvernig leikurinn myndi þróast meira hvernig standið á mér væri í dag. Ég hef ekki spilað lengi og þetta er krefjandi leikir þannig við ætluðum bara að sjá hvernig ég væri eftir síðasta leik í upphitun í dag og mér leið vel svo ég fékk leyfi til að spila þessar mínútur."

,,Ég er að koma til en eins og ég segi, ég tek þetta dag fyrir dag. Við erum að passa að fara ekki fram úr okkur."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top