Hugsanlega hefði ég getað gert betur
Sævar Jónasson)

Stefán Arnarson þjálfari Hauka var að vonum svekktur eftir fjögurra marka tap í úrslitaleik Powerade-bikarsins á Ásvöllum í dag. Valsliðið reyndist sterkari aðilinn síðustu 15 mínútur leiksins og sneru taflinu sér í vil eftir að hafa verið 14-18 undir. Valur vann leikinn að lokum 23-19.

,,Okkur leið vel fyrir utan kannski síðustu 15 mínúturnar sóknarlega. Við erum að spila gegn sterku liði og þær voru bara skynsamri en við og kláruðu þetta," sagði Stefán Arnarson í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Hugsanlega hefði ég getað gert eitthvað betur en við fórum svolítið mikið í einstaklingsframtak og ég hefði kannski getað stjórnað þessu betur," sagði Stefán sem segir að stelpurnar sínar séu skiljanlega vonsviknar eftir leikinn.

,,Það er ömurlegt að tapa bikarúrslitaleik en þetta á að efla okkur til stærri hluta."

En hvað var hann ánægðastur með?

,,Mér fannst varnarleikurinn frábær og markvarslan var góð. Sóknarleikurinn í 40 mínútur var flottur og við vorum að skora og opna þær. Við vorum að klikka á einstökum færum en heilt yfir góður leikur og en við vorum félagar í 10-12 mínútur og það er ástæðan fyrir því að við erum ekki bikarmeistarar."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top