Annar leikmaður dregur sig úr landsliðshópnum
(Photo by FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins hefur þurft að gera aðra breytingu á landsliðshópnum á tveimur dögum fyrir leikina sem framundan eru gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026.

Ísland leikur fyrri leik sinn gegn Svartfjallalandi á morgun á Ásvöllum og hefst leikurinn klukkan 18:00.

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður Fram hefur dregið sig úr hópnum vegna meiðsla og í hennar stað hefur línumaðurinn, Alexandra Líf Arnarsdóttir verið kölluð inn.

Í gær dró Þórey Anna Ásgeirsdóttir sig úr landsliðshópnum þar sem hún ber barn undir belti og Sonja Lind Sigsteinsdóttir leikmaður Hauka var kölluð inn í hópinn í hennar stað.

Ísland er án stiga í riðli sínum í undankeppninni eftir tvo leiki en Svartfjallaland er með fullt hús stiga. Liðin mætast síðan aftur ytra á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top