Hægri hornamaður Hauka í Olís-deild kvenna, Ragnheiður Ragnarsdóttir leikur ekki meira með liðinu á þessu tímabili. Ragnheiður er ólétt en það er Handbolti.is sem greinir frá. Hún kom lítillega við sögu í bikarúrslitahelginni sem fram fór í lok febrúar þar sem Haukar töpuðu gegn Val í úrslitaleik Powerade-bikarsins. Ragnheiður sem varð 31 árs fyrr á þessu ári hefur leikið með meistaraflokki Hauka í rúmlegan áratug en hún er uppalin á Ásvöllum. Ragnheiður er annar örvhenti leikmaður kvennaliðs Hauka sem dettur út á tímabilinu vegna óléttu en Rut Arnfjörð Jónsdóttir er einnig ólétt og lék aðeins tvo leiki með Haukum á tímabilinu. Landsliðskonan, Sonja Lind Sigsteinsdóttir er því eini örvhenti leikmaðurinn í leikmannahópi Hauka. Ragnheiður hafði skorað 21 mark fyrir Hauka á tímabilinu í 17 leikjum í Olís-deildinni en Sonja Lind hefur verið hægri hornamaður númer eitt hjá Haukum á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.