Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM ytra í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er í beinni útsendingu á RÚV. Íslenska landsliðið vann Svartfjallaland á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið með einu marki en nú er komið að öðrum leik þjóðanna og nú í Podgorica höfuðborg Svartfjallalands. Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið þá 16 leikmenn sem munu spila í kvöld. Díana Dögg Magnúsdóttir og Ethel Gyða Bjarnasen koma inn í hópinn frá síðasta leik en Hafdís Renötudóttir og Katrín Tinna Jensdóttir þurftu báðar að draga sig úr landsliðshópnum eftir síðasta leik þar sem þær báðar fengu höfuðhögg í leiknum. Hópurinn er eftirfarandi Markverðir Aðrir leikmenn
Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (0/0)
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (22/0)
Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar (6/3)
Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (67/116)
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (20/47)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (72/97)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (34/131)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (39/80)
Elísa Elíasdóttir, Valur (30/27)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (21/28)
Lovísa Thompson, Valur (38/72)
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (8/1)
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (11/6)
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (46/192)
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (4/12)
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (4/1)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.