HK 2 gerði sér lítið fyrir og vann eins marks sigur á Val 2 29-28 í 21.umferð Grill66-deildar karla í kvöld en um er að ræða næst síðustu umferðina í deildinni. HK 2 á þó inni einn frestað leik sem spilaður verður síðar. Bjarki Freyr Sindrason var markahæstur í liði HK 2 með 10 mörk og Viktor Bjarki Einarsson og Kristófer Stefánsson komu næstir með sex mörk hvor. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 12 skot í marki HK 2. Hjá Val 2 var Matthías Ingi Magnússon markahæstur með níu mörk ásamt Bjarka Snorrasyni. Valur 2 er í 3.sæti deildarinnar með 28 stig en HK 2 er í þriðja neðsta sæti deildarinnar og var með einungis 10 stig fyrir leikinn í kvöld. Eftir jafnan leik í upphafi kom 8-1 kafli fyrir HK 2 þegar þeir breyttu stöðunni úr 8-8 í 16-9 en HK 2 var átta mörkum yfir í hálfleik 20-12. Valur 2 voru ekki tilbúnir að gefast svo auðveldlega við og komu sér hægt og bítandi aftur inn í leikinn og minnkuðu muninn í eitt mark í stöðunni 28-27. Lengra komst Valur 2 ekki og HK 2 hélt út leikinn og unnu að lokum eins marks sigur 29-28. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.