Valur tók á móti Fram í 19.umferð Olís deildar kvenna á Hlíðarenda í dag. Valskonur gátu með sigri tryggt sér deildarmeistaratitilinn þar sem ÍBV tapaði fyrr í dag gegn Haukum á Ásvöllum. Valur voru án margra lykilmanna í dag og því hafa Framkonur eflaust hugsað sér gott til glóðarinnar að sækja óvænt stig heim í Úlfarsárdalinn. Fram voru með undirtökin í fyrri hálfleik en Valskonur voru þó aldrei langt á eftir þar sem Lovísa Thompson var allt í öllu í Valsliðinu í dag. Fram leiddu með einu marki í hálfleik, 14-15. Það sama var upp á teningnum í síðari hálfleik, Fram skrefinu á undan en Valur aldrei langt á eftir. Þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka voru Frammarar tveim mörkum yfir, 28-30. Valskonur komu þá með þrjú mörk í röð og náðu að snúa leiknum sér í vil. Fram jafnaði leikinn í 32-32 þegar 12 sekúndur voru eftir og þá tóku Valskonur leikhlé. Úr leikhléinu skoraði Lovísa sitt 15. mark í leiknum og tryggði Val eins mark sigur á Fram og þar með deildarmeistaratitilinn. Eins og áður segir var Lovísa Thompson markahæst hjá Val með 15 mörk en hjá Fram voru Ásdís Guðmundsdóttir og Harpa María Friðgeirsdóttir markahæstar með 7 mörk. Valur er fjórum stigum á undan ÍBV þegar tvær umferðir eru eftir en þar sem þær eru með betri innnbyrgðis gegn ÍBV er titilinn í höfn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.