Selfoss tók á móti Stjörnunni í 19.umferð Olís deildar kvenna á Selfossi í dag í sannkölluðum botnslag. Fyrir leikinn voru Selfyssingar einu stigi á eftir Stjörnunni ef þær myndu tapa yrði verkefnið að bjarga sér frá falli orðið ansi erfitt. Stjarnan byrjaði leikinn mun betur og voru komnar með fjögurra marka forskot, 5-9. Þá snéru Selfyssingar leiknum sér í vil og tóku 9-1 kafla og breyttu stöðunni í,14-10. Staðan í hálfleik var, 17-13 og útlitið gott fyrir Selfoss. Selfoss hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og skoraði nánast úr öllum sínum sóknum og hleyptu Stjörnunni aldrei nálægt sér. Fyrstu vörðu skot Stjörnunnar í síðari hálfleik komu þegar tæpar 10 mínútur voru eftir af leiknum og var það of seint fyrir þær. Selfyssingar unnu leikinn, 35-33 og eru komnar fyrir ofan Stjörnuna í Olís deildinni þegar 2 umferðir eru eftir. Marte Syverud var markahæst í liði Selfoss í dag með 9 mörk, þar af 6 úr vítum. Hjá Stjörnunni var Sara Katrín Gunnarsdóttir markahæst með 8 mörk. Eins og fyrr segir náðu markmenn Stjörnnunar sér ekki á strik í dag en í marki Selfoss áttu Sara Xiao Reykdal og Selma Þóra Jóhannsdóttir fínan leik og áttu mikilvægar vörslur á góðum mómentum í leiknum. Stjarnan er því komið í botnsæti deildinnar þegar 2.umferðir eru eftir en Selfoss eru komnar í umspilssætið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.