Haukar með sterkan sigur á ÍBV
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukar tóku á móti ÍBV í fyrsta leik 19.umferðar Olís deildar kvenna á Ásvöllum í dag.

Liðin voru í öðru og þriðja sæti deildinnar fyrir leikinn og voru bæðin búin að vera á miklu flugi eftir áramót.

Haukar byrjuðu leikinn feikilega vel og áttu ÍBV fá svör við varnarleik Haukanna og voru einungis búnar að skora 1 mark eftir þrettán mínútna leik og Haukar komnar með fjögurra marka forskot. ÍBV náði aðeins að laga sóknarleikinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og var staðan, 15-12, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Haukar byrjuðu síðari hálfleikinn líkt og þann fyrri og náðu aftur góðu forskoti og voru á tímabili komnar sex mörkum yfir. ÍBV náði, líkt og í fyrri hálfleik, að minnka muninn og voru tveim mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir. ÍBV náði þó ekki að minnka muninn meira og tveggja marka sigur Hauka staðreynd, 25-23.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka með 7 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir markahæst með 6 mörk.

Sara Sif Helgadóttir var frábær í marki Hauka og varði 14 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top