Í kvöld mættust Grótta og FH í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi í Grill 66 deild kvenna. Flestir bjuggust væntanlega við sigri Gróttu stelpna enda þær í gríðarlega harðri baráttu um að komast upp í Olís deildina. FH stelpur mættu grimmari til leiks og komust meðal annars í 3-5. Eftir 20 mínútna leik var staðan orðin 8-13 fyrir FH. Áfram héldu þær að spila frábærlega vel og staðan í hálfleik var 12-18. Mjög óvæntar tölur sem væntanlega fáir bjuggust við. FH stelpur héldu forskotinu áfram. Eftir 45 mínútna leik var staðan 19-22. Grótta náði svo að jafna í 22-22 þegar 10 mínútur voru eftir og grunaði væntanlega flestum að þarna myndi Grótta síga fram úr en allt kom fyrir ekki. Fór það svo að FH voru aðeins klókari á lokakaflanum og uppskáru sigur 24-25. Svo sannarlega óvæntur útisigur hjá gestunum. Þetta þýðir að Grótta er ekki lengur í toppsæti deildarinnar og Olís deildar sætið í hættu. Hjá Gróttu var Katrín Scheving með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 11 boltum. Hjá FH var Thelma Dögg Einarsdóttir markahæst með 7 mörk. Sonja Szöke varði 16 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.