Í kvöld mættust Fram 2 og Víkingur í Grill 66 deild kvenna og leikið var í Lambhagahöllinni. Fram stelpur mættu hrikalega sterkar til leiks og höfðu yfirhöndina lengi vel. Eftir korters leik var staðan 9-6 fyrir heimakonur. Staðan í hálfleik var síðan 15-12 fyrir Fram. Í seinni hálfleik var Fram áfram í bílstjórasætinu og voru Víkings stelpur engan veginn á deginum sínum. Mest náðu Fram stelpur 9 marka forskoti. Fór það svo að lokatölur urðu 29-22. Heldur betur óvæntur sigur hjá Fram og greinilegt að Víkings stelpur þurfa að snúa bökum saman fyrir næstu leiki. Hjá Fram var Sara Rún Gísladóttir markahæst með 11 mörk. Arna Sif Jónsdóttir var frábær með 18 bolta varða. Hjá Víking var Auður Brynja Sölvadóttir markahæst með 7 mörk. Þyrí Erla varði 10 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.