Í kvöld mættust Afturelding og Fjölnir í Myntkaup höllinni í Grill 66 deild kvenna. Aftureldingar stelpur voru betri í upphafi leiks. En svo var mikið jafnræði með liðunum. Eftir korters leik var staðan 8-7. Stál í stál var einkennandi fyrir restina af fyrri hálfleiknum. Hálfleikstölur voru 15-14. Jafn og spennandi leikur hjá tveimur mjög áþekkum liðum í getu. Í seinni hálfleik voru Aftureldingar stelpur betri og með yfirhöndina fyrstu 12 mínúturnar. Á 42 mínútu jöfnuðu Fjölnis stelpur í 20-20. Restin af leiknum var gríðarlega jafn og spennandi. Síðustu 5 mínúturnar voru Fjölnis stelpur þó seigari, klókari og örlítið heppnari. Fór það svo að þær sigruðu leikinn 24-26. Hjá Fjölni var Berglind Ben markahæst með 9 mörk. Signý Pála varði 10 skot. Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 9 mörk. Ingibjörg Gróa varði 15 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.