Viggó fyrsti Íslendingurinn á athyglisverðan lista
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viggó Kristjánsson gerði sér lítið fyrir um helgina og skoraði 16 mörk í fimm marka sigri Erlangen gegn Minden. Erlangen skoraði 36 mörk í leiknum en auk 16 marka Viggós þá gaf hann fjórar stoðsendingar.

Tekinn hefur verið listi yfir leikmenn sem hafa skorað flest mörk í einum leik í þýsku úrvalsdeildinni alveg til ársins 1968. Þar er Viggó á meðal 18 leikmanna.

Enginn hefur skorað fleiri mörk í einum leik heldur en Þjóðverjinn Stefan Schröder er hann skoraði 21 mark fyrir HSV Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni tímabilið 2008/2009. Athygli vekur að Jerzy Klempel skoraði 19 mörk í einum deildarleik tímabilið 1982/1983 og síðan 18 mörk tímabilið 1986/1987 og árið áður skoraði hann 17 mörk. Enginn annar leikmaður hefur þrívegis skorað yfir 16 mörk í deildarleik í þýsku úrvalsdeildinni.

Hans Lindberg hefur tvívegis skorað 17 mörk tímabilið 2009/2010 og 2012/2013 einmitt með HSV Hamburg eins og Stefan Schröder.

Listann má sjá hér að neðan:

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top