Teitur og Elliði höfðu betur í Íslendingaslag – Haukur gerði jafntefli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einari Þorsteini Ólafssyni leikmanni Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni var einu sinni vikið af velli í tveggja marka sigri á útivelli gegn Hannover-Burgdorf. Hamburg vann leikinn 37-35 en þrír leikir fóru fram í deildinni í kvöld.

Nicolaj Jorgensen fór á kostum í liði Hamburg og skoraði 14 mörk úr 14 skotum í leiknum. Þýski landsliðs-línumaðurinn Justus Fischer skoraði 10 mörk úr 12 tilraunum fyrir Hannover-Burgdorf. Justus Fischer hefur verið orðaður frá Hannover-Burgdorf eftir tímabilið.

Fjórir íslenski landsliðsmenn tóku þátt í leik Melsungen og Gummersbach sem Gummersbach vann með sjö mörkum 24-31 á útivelli en um var að ræða sjötta sigur liðsins í deildinni í röð sem leikur undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.

Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk og Elliði Snær Viðarsson eitt fyrir Gummersbach. Með Melsungen leika Framarnir, Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson en báðir skoruðu eitt mark í leiknum.

Haukur Þrastarson skoraði þrjú mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir Rhein-Neckar Löwen sem gerði jafntefli 29-29 á útivelli gegn ThSV Eisenach. Rhein Neckar Löwen fékk tækifæri til að skora sigurmarkið í lokasókninni en þeim mistókst ætlunarverk sitt og jafntefli niðurstaðan. Rhein-Neckar Löwen er í 7. sæti með 29 stig eftir 25 leiki.

Gummersbach er í 4. sæti með 35 stig, þremur stigum frá Fuchse Berlin og fjórum frá Flensburg sem er í 2. sæti. Melsungen er í 8. sæti deildarinnar með 28 stig. Hamburg fór upp í 10.sæti deildarinnar með 21 stig og eru nú einu stigi á eftir Hannover-Burgdorf eftir sigur kvöldsins.

Allir íslensku landsliðsmennirnir sem voru í eldlínunni í gær verða næst í eldlínunni þegar Ísland mætir Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum 19. og 21. mars hér á landi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top