Þýska stórliðið SG Flensburg-Handewitt er sagt vera nálægt því að tryggja sér gríðarlega öfluga styrkingu í hægri skyttu stöðunni fyrir næstu ár. Samkvæmt Handballtransfer eru tveir af stærstu nöfnum þýsku úrvalsdeildarinnar orðaðir við félagið og viðræður sagðar í gangi. Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson, sem leikur með HC Erlangen, er sagður vera nálægt samkomulagi við félagið. En Handkastið hefur greint frá því í vikunni. Samkvæmt orðrómnum gæti samningur tekið gildi í síðasta lagi sumarið 2027, þó að Flensborg sé talið þrýsta á að fá leikmanninn til félagsins strax árið 2026. Viggó er með klásúlu í samningi sínum við Erlangen sem gæti gert Flensburg það kleift að kaupa hann frá félaginu. Klásúlan er sögð vera 250.000 evrur. Viggó hefur verið einn af markahæstu og leikmönnum deildarinnar síðustu tímabil. Þá er þýski landsliðsmaðurinn, Renārs Uscins einnig orðaður við félagið. Uscins, sem leikur með TSV Hannover-Burgdorf, er talinn einn öflugasta hægri skytta þýsku deildarinnar um þessar mundir og hefur þegar slegið í gegn í þýsku deildinni og með þýska landsliðinu. Samkvæmt orðrómum er Flensborg að íhuga að reyna fá Uscincs frá og með sumrinu 2027. Ef af verður virðist SG Flensburg-Handewitt ætla að tryggja sér sterka framtíð í hægri skyttustöðunni með tveimur af áhugaverðustu leikmönnum deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.