Ýmir lék sinn 200. leik í þýsku úrvalsdeildinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðsmaðurinn, Ýmir Örn Gíslason lék sinn 200. leik í þýsku úrvalsdeildinni í gær þegar Göppingen vann þriggja marka sigur á útivelli gegn Lemgo 27-30. Ýmir Örn komst hinsvegar ekki á blað í leiknum.

Ýmir hefur leikið með Göppingen frá árinu 2024 en þar áður lék hann með Rhein Neckar Löwen en hann gekk í raðir Rhein-Neckar Löwen sumarið 2020 frá uppeldisfélagi sínu Val.

Ýmir hefur verið lykilmaður með íslenska landsliðinu í fjölmörg ár en síðasta sumar framlengdi hann samningi sínum við Göppingen til ársins 2028.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top