Grafalvarleg staða og gríðarleg vonbrigði í Garðabænum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Farið var yfir botnbaráttuslaginn í Olís-deild kvenna í Handboltahöllinni í gærkvöldi þegar Hörður Magnússon stýrði umferðinni með þeim Ásbirni Friðrikssyni og Rakel Dögg Bragadóttur. Selfoss vann lífsnauðsynlegan sigur gegn Stjörnunni í síðustu umferð og fóru upp fyrir Stjörnuna.

Stjarnan er á botni deildarinnar með fimm stig en Selfoss er með sex stig þegar tvær umferðir eru eftir. Rýnt var í leikinn ásamt því að spáð var í spilin fyrir síðustu tvær umferðir deildarinnar.

,,Þessi staða sem Stjarnan er í er grafalvarleg. Þær eiga Fram heima og Hauka úti. Þetta lítur ekkert sérstaklega vel út og þetta hljóta að vera gríðarleg vonbrigði í Garðabænum," sagði Hörður Magnússon.

,,Ég held að það sé alveg óhætt að segja það, að sjálfsögðu. Liðið er á botni deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og þetta eru erfiðir leikir framundan. Mér finnst Stjörnuliðið betra heldur en þetta, að vera í 8.sætinu með fimm stig. Tvö af þessum fimm stigum komu gegn Fram rétt fyrir jól. Það er klárlega geta þarna til staðar og þær geta klárað þennan leik gegn Fram það er alveg á hreinu. Fram liðið er öflugt lið en sveiflukennt. Auðvitað er möguleiki þar," sagði Rakel Dögg Bragadóttir áður en Ásbjörn Friðriksson tók við.

,,Ef ÍBV klárar ÍR og Haukar vinnur Selfoss þá eru Haukar að fara mæta Stjörnunni og hafa engu að keppa í síðustu umferðinni. Það er spurning hvort það gefur þeim einhverja von að fara á Ásvelli og stela stigi þar í lokin."

Ef ÍBV vinnur ÍR í næstu umferð og Haukar vinnur Selfoss þá er einnig ljóst að Selfoss mætir ÍR í lokaumferðinni sem hefur þá um engu að keppa. Stjarnan þarf sigur því ef liðin enda jöfn er Selfoss með betri innbyrðisstöðu.

,,Það er að duga eða drepast fyrir Stjörnustelpur en það er sama sem gildir hjá Selfossi. Þær eru komnar í góða stöðu en vita að þetta er ekkert tryggt," sagði Rakel Dögg.

,,Stjarnan hefur verið nær því að taka sigur úr síðustu umferðum heldur en Selfoss. Það er dýrt að þær hafi ekki náð fleiri stigum fyrir þennan leik," bætti Ásbjörn Friðriksson við.

Næsta umferð í Olís-deild kvenna fer fram annað kvöld klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top