Í kvöld mættust Fram 2 og Afturelding í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Lambhagahöllinni. Fram stelpur mættu mun ákveðnari til leiks og voru komnar í 3-0 strax í upphafi leiks. Voru þær heilt yfir ögn betri aðilinn í fyrri hálfleik. Var fyrri hálfleikur að öðru leyti nokkuð jafn. Staðan í hálfleik var 10-10 og var þetta stál í stál. Eftir 7 mínútna leik í seinni hálfleik voru Fram stelpur komnar í 16-12 og tóku þá þjálfarar UMFA leikhlé. Það breytti greinilega ekki miklu því Fram breyttu stöðunni í 19-13. Þá tóku Aftureldingar stelpur við sér og náðu loks að jafna í 22-22 þegar 4 mínútur voru eftir af leiknum. Þær skoruðu síðan síðustu 3 mörk leiksins og unnu 22-25 eftir ótrúlega endurkomu. Afar sterkur sigur hjá gestunum úr Mosó sem lyftust upp úr botnsætinu með þessum sigri. Hjá Fram 2 var Arna Sif Jónsdóttir með 16 bolta varða. Aníta Rut Eggertsdóttir skoraði 7 mörk. Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir með 10 mörk. Ingibjörg Gróa varði 14 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.