Í kvöld mættust Valur 2 og Víkingur í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Hlíðarenda. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Fyrsta korterið var hnífjafnt og var staðan 8-6 fyrir Val á þeim tíma. Áfram hélt þetta á þessum nótum og var Valur alltaf 2-3 mörkum yfir. Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir heimastúlkur. Í byrjun seinni hálfleiks náði Valur fljótlega góðu forskoti og komust í 20-14. Víkings stelpur áttu þá frábæra rispu og minnkuðu muninn í 21-20 þegar korter var eftir. Seinasta korterið voru svo Valur mun betri aðilinn og unnu þann kafla 12-6. Lokatölur leiksins urðu 33-27. Hjá Val 2 var Laufey Helga Óskarsdóttir í sérflokki og setti 12 mörk. Elísabet Millý varði 13 skot. Hjá Víking var Valgerður Elín Snorradóttir markahæst með 11 mörk. Þyrí Erla varði 10 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.