Fjölnir og Grótta mættust í kvöld í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Egilshöll. Fyrsta korterið voru Fjölnis stelpur betri aðilinn og voru yfir 8-7 um miðbik fyrri hálfleiks. Voru þær að leika mjög vel. Seinna korterið í fyrri hálfleik var eign Gróttu stúlkna sem voru mun sterkari og voru verðskuldað 12-14 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik héldu Gróttu stelpur áfram uppteknum hætti og voru lengst af alltaf 3-4 mörkum yfir. Fjölnir náði mest að minnka muninn niður í 2 mörk þegar rúmar 10 mínútur voru eftir en nær komust þær ekki. Urðu lokatölur 21-28 fyrir gestina af Seltjarnarnesi. Sanngjarn útisigur og Grótta lifir enn í voninni um að komast beint upp en þá þarf HK að misstíga sig í síðustu umferðinni. Hjá Fjölni var Signý Pála Pálsdóttir með 12 bolta varða. Berglind Benediktsdóttir var markahæst með 8 skot. Hjá Gróttu var Andrea Gunnlaugs með 12 varin skot. Katrín Scheving og Ída Margrét voru báðar með 8 mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.