ÍBV tók á móti ÍR í 21.umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyju í kvöld. Það voru fáliðaðar ÍR stelpur sem mættu til Eyja í kvöld en það voru einungis 12 leikmenn á skýrslu hjá þeim. ÍBV byrjaði leikinn mun betur í kvöld og náði strax góðu forskoti en Sandra Erlingsdóttir og Birna Dís Sigurðardóttir voru allt í öllu í sóknarleik ÍBV og Amalia Fröland varði 53% skotanna sem komu á hana í fyrri hálfleik. Ekki vænkaðist hagur ÍR-inga þegar Matthildur Lilja Jónsdóttir fékk beint rautt spjald þegar hún braut á Söndru Erlingsdóttur í fyrri hálfleikinn og hafði Grétar Áki, þjálfari ÍR, einungis 9 útileikmenn til að velja úr. ÍBV leiddi með fimm mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, 15-10. Heimakonur héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og átti fámennur hópur ÍR-inga lítil svör við ÍBV í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu, 33-25, ÍBV í vil. Birna Dís Sigurðardóttir var markahæst í liði Eyjakvenna í kvöld með 8 mörk en hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst eins og oft áður með 13 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.