Frábær síðari hálfleik tryggði Haukum sigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Selfoss tók á móti Haukum í 21.umferð Olís deildar kvenna á Selfossi í kvöld.

Selfoss vann gífurlegar mikilvægan sigur á Stjörnunni í síðasta leik og náði þar með að koma sér upp úr toppsætinu á hárréttum tíma þar sem einungis tvær umferðir voru eftir.

Haukar byrjuðu leikinn betur í kvöld en Selfyssingar náðu að vinna sig hægt og rólega inn í leikinn. Það var nánast jafnt á öllum tölum til loka fyrri hálfleiks en það var Hulda Dís Þrastardóttir sem skoraði lokamark fyrrihálfleiks og sá til þess að Selfoss leiddi með einu marki í hálfleik, 13-12.

Haukar náðu hins vegar að snúa dæminu við í síðari hálfleik og var hann eign þeirra frá a-ö. Það fór svo að lokatölur urðu, 22-30 sigur Hauka sem léku við hvern sinn fingur í síðari hálfleik.

Selfoss eru ennþá í umspilssætinu þar sem Stjarnan náði ekki að vinna Fram en liðin eru jöfn að stigum en Selfyssingar hafa betri innbirgðisviðureignir gegn Stjörnunni í vetur.

Hulda Dís Þrastardóttir var markahæst í liðið heimakvenna í kvöld með 6 mörk en hjá Haukum var Rakel Oddný Guðmundsdóttir markahæst með 8 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top