Stjarnan tók á móti Fram í 21.umferð Olís deildar kvenna í Garðabænum í kvöld. Heimakonur þurftu nauðsynlega á sigri að halda í þeirri miklu fallbaráttu sem þær voru í og var jafnvel uppi sú staða að þær gætu fallið ef Selfoss myndi ná hagstæðum úrslitum í kvöld og Stjarnan ekki. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á því að hafa frumkvæðið en mikið var skorað í fyrri hálfleik í Mýrinni í kvöld. Stjarnan leiddi þó með einu marki, 18-17, í hálfleik en það var Sara Katrín Gunnarsdóttir sem kom þeim yfir með marki rétt áður en hálfleiksflautan gall. Stjarnan hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og náðu mest þriggja marka forskoti og voru 33-30 yfir þegar tæplegan sjö mínútur voru eftir af leiknum. Fram náði hins vegar að jafna leikinn í 34-34 og hafði tækifæri á að stela sigrinum í lokin en skot Huldu Dagsdóttur náði ekki á markið og jafntefli því niðurstaðan. Stjarnan jafnar því Selfoss að stigum í deildinni en Selfyssingar hafa ennþá betri innbirgðis svo Stjarnan þarf að treysta á að ná í annað stig til þess að koma sér í umspilssæti. Heimakonur eru eflaust hundfúlar að hafa ekki fengið meira úr leiknum því tækifærið var svo sannarlega til staðar. Natasja Hammer var markahæst í liði Stjörnunnar í kvöld með 7 mörk en hjá Fram var Dagmar Guðrún Pálsdóttir frábær með 10 mörk úr 11 skotum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.