Kvennalið Stjörnunnar gæti fallið í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Næst síðasta umferðin í Olís-deild kvenna fer fram í kvöld þegar heil umferð verður leikin. Allir leikir umferðarinnar hefjast klukkan 18:00 en Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn í síðustu umferð eftir sigur á Fram en fyrr sama dag hafði ÍBV tapað gegn Haukum.

Selfoss vann lífsnauðsynlegan leik gegn Stjörnunni í fallbaráttunni og það er ljóst að kvennalið Stjörnunnar gæti fallið í kvöld.

Stjarnan fær Fram í heimsókn í 20.umferð Olís-deildarinnar á meðan Selfoss fær Hauka í heimsókn. Fari svo að Selfossi fái einu stigi meira en Stjarnan í umferðinni í kvöld er ljóst að Stjarnan er fallið úr Olís-deildinni fyrir lokaumferðina sem fer fram á laugardaginn.

Stjarnan er á botni deildarinnar með fimm stig en Selfoss er með sex stig. Selfoss er með betri innbyrðis stöðu milli félaganna og því nægir Selfossi að enda með jafn mörg stig og Stjarnan í deildinni til að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í Olís-deild kvenna.

20.umferðin í Olís-deild kvenna:
18:00 Stjarnan - Fram
18:00 Selfoss - Haukar
18:00 ÍBV - ÍR
18:00 KA/Þór - Fram

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top