Íslenska U20 ára landsliðið mætir Bandaríkjunum á HM
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramót kvenna skipað leikmönnum 20 ára og yngri sem fram fer í Jinzhong í Kína í sumar.

Mótið fer fram dagana 24. júní til 5. júlí en þjálfari íslenska landsliðsins er Halldór Stefán Haraldsson. Ekki hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hans en Hildigunnur Einarsdóttir var honum til aðstoðar í síðasta verkefni og Þórey Rósa Stefánsdóttir í verkefninu á undan.

Ísland verður í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum en Svartfjallaland var í efsta styrkleikaflokki og Tékklandi í öðrum styrkleika. Ísland var í þriðja styrkleika og Bandaríkin í þeim neðsta. Tvö efstu lið riðilsins komast í 16-liða úrslit en tvö þau neðri leika um sæti 17 til 32 eða um hinn svokallaða Forsetabikar.

Er þetta annað heimsmeistaramót þennan aldursflokks sem fram fer í Kína en HM U18 fór einnig fram í Kína fyrir tveimur árum en um er að ræða stelpur sem fæddar eru 2006 eða seinna.

Allir riðlar mótsins má sjá hér að neðan:

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top