Haukar tóku á móti Stjörnunni í lokaumferð Olís deildar kvenna á Ásvöllum í dag. Það var ljóst fyrir leikin að Stjarnan þurfti að fá að minnsta kosti stig úr leiknum og treysta á að ÍR myndi vinna Selfoss á sama tíma svo Stjarnan myndi eiga möguleika á að komast í umspilssæti. Haukar byrjaðu leikinn mun betur og voru komnar með fjögurra marka forskot eftir um 10 mínútna leik. Heimakonur héldu áfram að bæta í forskotið og var staðan, 17-11, þegar liðin gengu til búningsherbergja og allt stefndi í að Stjarnan væri á leiðinni niður í Grill 66 deildina. Stjörnukonur komu grimmar út í síðari hálfleikinn og ætluðu greinilega að selja sig grimmt. Þær voru búnar að minnka muninn niður í þrjú mörk eftir nokkrar mínútur í síðari hálfleik. Þegar korter var eftir af leiknum minnkuðu þær muninn í tvö mörk. Margrét Einarsdóttir, markmaður Stjörnunnar, fann sig vel á sama tíma. Þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum var Stjarnan búin að jafna leikinn í 22-22 og allt stefndi í æsispennandi lokamínútur. Selfoss voru búnar að tapa leiknum sínum gegn ÍR svo Stjarnan vissi að jafntefli myndi duga. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum voru Haukar komnar tveim mörkum yfir og allt virtist líta út fyrir það að Stjarnan væri á leiðinni beint niður. Stjarnan náði hins vegar að jafna leikinn þegar örfáar sekúndur voru eftir í, 26-26. Þá hófst ótrúlega atburðarás þar sem Haukar ætla taka hraða miðju þar sem mark Stjörnunnar var tómt en á sömu sekúndur tóku þjálfarar Hauka leikhlé þegar boltinn virtist vera á leið í tómt markið. Úr leikhléinu kom ekki og niðurstaða leiksins því jafntefli og Stjarnan tryggði sér sæti í umspili um sæti í Olís deild kvenna að ári. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst hjá Haukum með 7 mörk en hjá Stjörnunni var Natasja Hammer markahæst með 9 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.