Fram vann KA/Þór í lokaumferð Olís-deildar kvenna í dag á heimavelli með sjö mörkum 32-25 en leikurinn hafði engin áhrif loka niðurstöðu liðanna í Olís-deildinni þetta tímabilið. Fram endar í 5.sætinu með 20 stig en KA/Þór í sætinu fyrir neðan með 15 stig en KA/Þó voru nýliðar í deildinni. Hulda Dagsdóttir var markahæst í liði Fram með sjö mörk og Ásdís Guðmundsdóttir skoraði sex. Hjá KA/Þór var Lydía Gunnþórsdóttir markahæst með sjö mörk og Trude Hakonsen kom næst með fimm mörk. Arna Sif Jónsdóttir átti frábæra innkomu í mark Fram og varði 8 skot eða 40% markvörslu en Ethel Gyða Bjarnason var með fimm varin skot, 29% markvörslu. Hjá KA/Þór var Bernadett Leiner með níu varin skot, 22% markvörslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.