Bráðefnilegur leikmaður framlengir við Fram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katla Kristín Hrafnkelsdóttir hefur framlengt samningi sínum við uppeldisfélag sitt, Fram. Katla gerir tveggja ára samning sem gildir til ársins 2028.

Katla hefur þrátt fyrir ungan aldur verið að fá stærra hlutverk í Fram-liðinu í Olís-deild kvenna sérstaklega upp á síðkastið. Katla er fædd árið 2009 og er á sínu fyrsta ári í Olís-deildinni en hún er einnig lykilmaður í Fram 2 í Grill66-deildinni.

,,Katla er bráðefnilega miðja/skytta og hefur verið að koma meira við sögu í Olísdeildinni upp á síðkastið ásamt því að fara fyrir 3. flokk og Grill 66 liði okkar Frammara. Við erum mjög spennt að fylgjast með framþróun Kötlu á næstu árum og bindum miklar vonir við hana á komandi tímabilum," segir í tilkynningunni frá Fram.

Katla Kristín hefur einnig verið viðloðandi yngri landslið Íslands og var til að mynda í síðasta landsliðshóp Grétars Áka Andersen þjálfara U18 ára landsliðs kvenna sem æfði á dögunum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top