Í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins var farið yfir fyrri vináttulandsleik Íslands gegn Svíþjóð sem fram fór í gærkvöldi þar sem Svíþjóð vann með tveimur mörkum 33-35. Stymmi klippari stjórnaði umræðunni og Ásgeir Jónsson og Kristinn Björgúlfsson voru gestir í Rapyd-stúdíóinu. Rætt var um gott framtak HSÍ í vikunni þegar Strákarnir okkar mættu í Smáralindina og gáfu ungum sem öldnum aðdáendum eiginhandaráritanir. ,,Það kom mikill markaðsmaður til mín í stólinn í dag og var að segja mér hversu vel heppnað framtakið hjá HSÍ var í Smáralindinni í vikunni þar sem Strákarnir okkar mættu og voru að gefa eiginhandaráritanir. Hann hrósaði þessu mikið, ekki mest handboltamaður í heimi en hann tók eftir þessu og fannst þetta vel gert." Stymmi klippari nefndi síðuna hugmynd sem marksmaðurinn sagði honum í hárgreiðslustólnum í gær. ,,Hann sagði mér síðan frá hugmynd sem ég átti að reyna koma með niður á HSÍ og ég ætla nýta Handkastið sem platform til að koma þessari hugmynd niður á HSÍ ef einhver er að hlusta. Miðað við skammirnar sem við fáum frá HSÍ þá virðast einhverjir þar að vera hlusta." ,,Í Svíþjóð eru öll sérsamböndin með samningi við stærstu verslunarmiðstöðina, held ég í Stokkhólmi. Sem væri þá Smáralind eða Kringlan í okkar tilfelli. Þegar það er stórmót í gangi hjá þá er opnuð verslun í verslunarmiðstöðinni í Svíþjóð og gert húllum hæ í kringum stórmótið. Þar er hægt að kaupa varning og allt sem því fylgir. Sett upp mörk og það er hægt að taka þátt í einhverjum gjafaleikjum. Smáralind gæti verið heimavöllur landsliðsins á meðan stórmót er í gangi. Mögulega gætu landsliðin mætt í verslunina áður en stórmótin hefjast og gefa eiginhandaráritanir og síðan yrði búningar, treflar, boltar til sölu." Gestir þáttarins voru sammála um að þetta væri frábær hugmynd og eitthvað sem HSÍ ætti klárlega að skoða. Nú er bara spurning hvort HSÍ fái Kringluna, Smáralind eða jafnvel verslunarmiðstöðina Fjörð í Hafnarfirði með sér í lið fyrir næstu stórmót og opni pop-up verslun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.