HK stelpur komnar upp í Olís deildina – Til hamingju HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust HK og Fjölnir í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kórnum.

Fyrir leik var vitað að ef HK myndi sigra leikinn að þá færu þær beint upp í Olís deildina.

Það var greinilega þónokkur taugatitringur í heimastúlkum í byrjun leiks því fyrstu 20 mínútur leiksins var leikurinn mjög jafn. Seinustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleiknum var HK betra og ljóst að þar var gefinn tónninn fyrir það sem koma skal í seinni hálfleik.

Í seinni hálfleik var HK mun betri aðilinn og mesti skrekkurinn farinn úr þeim. Fyrstu 10 mínúturnar náðu þó Fjölnis stelpur að hanga aðeins í heimastúlkum. Þegar 12 mínútur lifðu leiks var munurinn kominn upp í 10 mörk og urðu lokatölur 31-20.

HK er því komið upp í Olísdeildina og óskar Handkastið öllum í HK innilega til hamingju með það.

Hjá HK var Valgerður Þorsteins markahæst með 6 mörk og Danijela Sara varði 10 skot.

Hjá Fjölni var Signý Pála Pálsdóttir með 14 varin skot og þær Berglind Ben og Stefanía Ósk báðar með 6 mörk.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top