Í dag mættust Valur 2 og FH í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Hlíðarenda. Frá byrjun leiks voru FH stelpur betri aðilinn og eftir korters leik var staðan 4-8. Hálfleikstölur voru síðan 14-18. FH stelpur voru mjög einbeittar og það var ljóst á þeirra leik að þær ætluðu sér að koma að fullum krafti inn í síðasta leik fyrir umspilið. Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum og var FH oftast með forskotið í 4-7 mörkum. Aldrei náðu Valsstúlkur að ógna þeim að neinu ráði. Urðu lokatölur 27-35. FH stelpur með öruggan, sanngjarnan og sannfærandi sigur í Origo höllinni. Hjá Val voru systurnar Katla og Laufey markahæstar með 6 mörk. Elísabet Millý varði 8 skot. Hjá FH var Thelma Dögg Einarsdóttir markahæst með 12 mörk. Sonja Szöke varði 8 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.