Lokaumferðin í Olís-deild kvenna fer fram í dag þegar fjórir leikir hefjast klukkan 14:00. Spennan er á botni deildarinnar en sæti 1.-6. mun ekki breytast eftir leiki dagsins. Það er hinsvegar allt undir hjá Selfossi og Stjörnunni fyrir leiki dagsins en Stjarnan er á botni deildarinnar fyrir lokaumferðina með jafn mörg stig og Selfoss en með slakari innbyrðisstöðu milli liðanna. Selfoss hefur unnið þrjá leiki í vetur og tveir sigurleikjanna hafa verið gegn Stjörnunni. Rætt var um fallbaráttuna í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Stjarnan fer í heimsókn á Ásvelli og Selfoss fer upp í Breiðholt og mætir löskuðu liði ÍR. Ég held að Haukar séu eitt heitasta lið deildarinnar í dag," sagði Stymmi klippari áður en Ásgeir Jónsson gestur Handkastsins tók til máls. ,,Ég held að þetta séu skrítnir leikir fyrir bæði lið, Hauka og ÍR. Þau hafa að engu að keppa en bæði Stjarnan og Selfoss hafa að öllu að keppa. Ég held að það sé ekkert hægt að segja að Stjarnan sé á leiðinni í erfiðari leik. Mögulega miðað við hvernig formið á Haukum hefur verið." Ásgeir velti fyrir sér hvað þjálfarar Hauka og ÍR myndu gera í leikjum dagsins þar sem ekkert er undir hjá þeim en úrslitakeppnin er framundan. ,,Þú sem þjálfari Hauka, segjum að þú sért með leikmann sem er tæpur og þú ert að fara í leik gegn liði sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Ertu að fara hvíla? Eða ertu að fara taka séns og reyna halda góðu runni áfram? Það er alveg spurningarmerki. Þetta stendur og fellur með frammistöðu Selfoss og Stjörnunnar finnst mér." ,,Ég get allavegana sagt ykkur það að Díana Guðjónsdóttir mætir í alla leiki til að vinna, við vitum það," svaraði Stymmi klippari. Hvað myndi Ásgeir gera? spurði Kristinn Björgúlfsson. ,,Númer 1,2 og 3 myndi ég aldrei taka sénsa með tæpan leikmann í svona leik. Ef ég væri með leikmenn sem væri tæpur og ég er að fara í leik sem skiptir mig engu máli þá myndi ég ekki taka séns með úrslitakeppnina framundan." ,,Ég myndi hvíla mína leikmenn ef ég ætti möguleika á því. Ég myndi fórna einum leik til að hafa mína leikmenn ferska þegar úrslitakeppnin hefst. Ég myndi líta á þetta þannig að það er ekki vandamál Hauka eða ÍR í hvaða stöðu Selfoss eða Stjarnan eru í," svaraði Kristinn að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.