Mótanefnd HSÍ hefur samþykkt beiðni Vals og ÍBV um að fresta leik liðanna í lokaumferð Olís-deildar kvenna sem átti að fara fram á morgun klukkan 14:00 í Valsheimilinu um viku. Ástæða frestunarinnar er sögð vera vegna veðurs en mikið óveður er á landinu og er spáð svipuðu veðri á morgun. Ólafur Víðir Ólafsson starfsmaður mótanefndar staðfesti þetta í samtali við Handkastið en sagði að aðrir leikir umferðarinnar væru enn á dagskrá á morgun. ,,Að svo stöddu fara allir aðrir umferðarinnar fram," sagði Ólafur við Handkastið. Valur hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og ÍBV er fast í 2.sæti deildarinnar. Leikurinn skiptir því litlu máli fyrir bæði lið og sleppa bæði félögin við fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Nýr leiktími Vals og ÍBV er á laugardaginn eftir viku klukkan 15:00. Leikir lokaumferðarinnar á morgun:
14:00 ÍR - Selfoss
14:00 Fram - KA/Þór
14:00 Haukar - Stjarnan

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.