Línumaðurinn, Birna Ósk Styrmisdóttir hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild Fram. Fram tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum um helgina. Birna Ósk gerir tveggja ára samning við Fram. ,,Það gleður okkur að tilkynna að Birna Ósk Styrmisdóttir hefur framlengt samning sinn við Fram," segir í tilkynningunni frá félaginu. ,,Birna Ósk er gríðarlega efnileg og bindum við vonir við að hún nái að festa sig í sessi hjá okkur í Olísdeildinni á samningstímanum," segir enn fremur í tilkynningunni. Birna Ósk hefur verið í leikmannahópi Fram sex sinnum í Olís-deildinni í vetur og skorað tvö mörk. Í Grill66-deildinni hefur hún hinsvegar verið töluvert í stæra hlutverki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.