Aftur höfðu Svíar betur gegn Íslandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland og Svíþjóð mættust öðru sinni á þremur dögum í vináttulandsleik í Kaplakrika í kvöld. Svíþjóð vann fyrri leik þjóðanna í Valsheimilinu með tveimur mörkum en í dag gerðu Svíar betur og unnu með þremur mörkum 27-30.

Svíþjóð var með yfirhöndina nánast allan leikinn en Ísland komst þrívegis yfir í leiknum og það allt í upphafi leiks. Svíþjóð komst mest þremur mörkum yfir í hálfleik en Ísland skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks og minnkaði muninn í tvö mörk 11-13.

Annan leikinn í röð reyndist Mikael Appelgren okkur erfiður í markinu en hann var með tæpa 50% markvörslu í fyrri hálfleik. Hann endaði með 43% markvörslu í leiknum með 18 varða bolta en hann stóð í marki Svía allan leikinn að undanskildum nokkrum vítaköstum. 

Í marki Íslands stóð Viktor Gísli Hallgrímsson allan leikinn með 12 varða bolta, 28% markvörslu.

Eftir að hafa verið að elta allan seinni hálfleikinn jafnaði Ísland metin í stöðunni 24-24 þegar rúmlega sex mínútur lifðu leiks.  Lengra komst íslenska landsliðið ekki og varði Appelgren stóra bolta undir lok leiks.

Markaskorun Íslands í leiknum dreifðist vel, Viggó Kristjánsson var markahæstur í liði Íslands með sjö mörk þar af þrjú úr vítum. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Orri Freyr Þorkelsson skoruðu þrjú mörk hver. 

Hjá Svíþjóð var Felix Möller markahæstur með sex mörk og Hampus Wanne og Axel Månsson skoruðu fimm mörk hvor.

Tveir hörku vináttulandsleikir sem Svíar unnu báða en margt sem Snorri Steinn Guðjónsson og hans teymi geta tekið úr þessum leikjum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top