Katrín Ósk framlengir við FH
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Ósk Ástþórsdóttir hefur framlengt samning sinn við FH til næstu tveggja ára eða út keppnistímabilið 2027-2028. Kató eða eins og hún er iðulega kölluð hefur komið frábærlega inn í FH liðið núna á seinni hluta tímabilsins eftir meiðsli og ljóst að þetta eru góðar fréttir fyrir FH.

Hún leikur sem skytta eða miðjumaður og hefur skorað 21 mark í 13 leikjum í vetur. Er hún uppalin í Haukum en skipti yfir í FH fyrir nokkrum árum. Þess má til gamans geta að hún er yngri systir Guðmundur Braga Ástþórssonar leikmanns TMS Ringsted.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top