Hvaða lið vinnur sér sæti í Olís-deildinni?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Lokaumferðin í Grill66-deild kvenna fer fram í dag með fjórum leikjum en HK stendur best að vígi á toppi deildarinnar með 36 stig en liðið fær Fjölni í heimsókn.

Lokaumferðin fer öll fram klukkan 18:00 í dag. Grótta sem er í 2.sæti tveimur stigum á eftir Grótu fær laskað lið Fram 2 í heimsókn en Olís-deildarlið Fram er að spila á sama tíma lokaleik sinn í Olís-deild kvenna gegn KA/Þór.

Grótta þarf á sigri að halda og treysta á sigur Fjölnis gegn HK til að tryggja sér 1.sætið í Grill66-deildinni. Einungis eitt lið fer upp í Olís-deildina og tæki þá sæti Selfoss sem féll úr Olís-deild kvenna í gær á ótrúlegan hátt.

Fram 2 og Afturelding eru á botni Grill66-deildarinnar með 13 stig en Afturelding fær Víking í heimsókn. Víkingur og FH eru að berjast um 3.sætið í deildinni en bæði lið hafa unnið sér einn þátttökurétt í umspili um laust sæti í Olís-deildinni.

Liðið sem endar í 4.sæti með Stjörnunni í undanúrslitum umspilsins og liðið sem endar í 3.sæti mætir annað hvort Gróttu eða HK.

Lokaumferðin í Grill66-deild kvenna:
18:00 Afturelding - Víkingur
18:00 Valur 2 - FH
18:00 Grótta - Fram 2
18:00 HK - Fjölnir

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top