Algjörlega fatalt að fara í eina deild
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um þá hugmynd sem upp hefur komið í handboltahreyfingunni um að fjölga liðum í Olís-deild kvenna úr átta liðum í tíu lið.

Selfoss féll um helgina á grátlegan hátt úr Olís-deildinni á meðan HK vann sér sæti í deildinni eftir sigur í Grill66-deildinni. Framundan er umspil þar sem Stjarnan, Grótta, Víkingur og FH keppa um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Fari svo að fjölgað yrði í Olís-deildinni á næstu leiktíð gæti þetta umspil skipt liðin í umspilinu miklu máli hvað varðar að vinna sér inn þátttökurétt í tíu liða úrvalsdeild.

,,Það hefur verið mikil umræða síðustu vikur og jafnvel mánuði um stöðu mála í íslenskum kvenna handbolta og hvort það sé ekki löngu orðið tímabært að fara í 10 liða úrvalsdeild. Með það í huga að geta þá fjölgað venslaliðum í Grill66-deildinni til að fjölga meistaraflokks liðum. Ég fór í smá rannsóknarvinnu í gærkvöldi það eru fjögur lið síðan við vorum með 11 lið í Grill66-deildinni og 8 liða í Olís-deild kvenna, maður hugsar bara meikar það sense?" sagði Arnar Daði Arnarsson meðal annars og beindi spurningunni að Aðalsteini Eyjólfssyni sem var gestur í þættinum.

80 leikmenn með hlutverk í efstu deild

,,Mér finnst úrslit bæði í umspili og bikarleikjum undanfarið að bilið er að minnka. Lið eins og HK og Grótta eru hörkulið með góða umgjörð. Þetta eru félög með gott starf og ég sé enga ástæðu til að vera spila á Olís-deildar leveli með átta félög. Þetta eru 80 leikmenn með hlutverk á Íslandi í efstu deild, það finnst mér alltof lítið. Það er lífsspursmál að fleiri félög og fleiri leikmenn komist að á stóra sviðinu í kvenna handboltanum.”

,,Það eru allir sem tengjast íslenskum kvenna handbolta sammála því að það þurfi að gera einhverjar breytingar. Það hafa tvær sviðsmyndir verið settar upp, það er annað hvort að fara í 10 liða úrvalsdeild eða sameina þetta í eina deild en lítill hópur manna hefur kallað eftir því," sagði Arnar Daði áður en Stymmi klippari tók til máls.

,,Ég held að það yrði algjörlega fatalt að fara í eina deild. Rökin eru þau að ég held að það yrði fækkun á leikmönnum. Ég held að það séu stelpur í Grill66-deildinni sem eru í þessu fyrir félagsskapinn og finnst gaman að spila handbolta. Ég er ekkert viss um að allir leikmennirnir í Grill66-deildinni séu spenntar fyrir því að mæta niður á Hlíðarenda og láta hnefa sig tvisvar sinnum á ári þar sem nánast atvinnumenn væru að mæta áhugamönnum.”

,,Rök þeirra sem vilja eina deild er meira að þeir eru að hugsa um kvenna handboltann í heild sinni og finnst að með 10 liða Olís-deild þá myndi það bitna á Grill66-deildinni. Mér finnst að með fullri virðingu fyrir Grill66-deildinni þá verður fókusinn að vera á Olís-deildinni,”

Fleiri kostir með tíu liða deild

Arnar Daði bætti við að hann telur að því að fjölga um tvö lið í Olís-deildinni þá væri verið í leiðinni að auka líkurnar á að eitt til fjögur ný venslalið kæmu inn í Grill66-deildina á næstu árum.

,,Ég held að það séu fleiri kostir við það að fara í tíu liða efstu deild og liðin í Grill66-deildinni geti byggt sig upp og hlúað að yngri flokkunum og mögulega einfaldara að vinna keppni á milli fjögurra liða heldur en sex sérstaklega þegar tvö mjög sterk félög fara upp úr deildinni þá gæti breiddin aukist svona," sagði Aðalsteinn.

Frekari umræðu má hlusta á í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top