Fram reyndist sterkari aðilinn gegn ÍR
{{brizy_dc_image_alt entityId=

ÍR og Fram mættust í fyrsta leik 6-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í Skógarselinu í dag en þetta voru liðin sem endaðu í 4. og 5. sæti Olís-deildar kvenna. Fyrirfram mátti búast við hörkuleik en Stymmi klippari spáði ÍR sigri í spá sinni á Handkastinu í morgun.

Fram náði frumkvæðinu snemma leiks og hafði yfirhöndina framan af fyrri hálfleik, en ÍR hélt sér þó alltaf inni í leiknum. Munurinn var tvö mörk í hálfleik 14-16 og ljóst að seinni hálfleikur yrði spennandi en Fram náði mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 10-14.

Í síðari hálfleik hafði Fram alltaf forystu. ÍR náði á köflum góðum kafla en Fram svaraði jafnharðan. Þegar leið á lokakaflann var leikurinn í járnum, en Fram reyndist sterkari á ögurstundu og tryggði sér nauman sigur 27-31 þar sem ÍR-ingar voru sjálfum sér verstar undir lok leiksins.

Hjá Fram var Ásdís Guðmundsdóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir markahæstar með sjö mörk og Hulda Dagsdóttir. Ethel Gyða varði 13 skot í marki Fram. Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með sjö mörk og Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoraði sex mörk. Sif Hallgrímsdóttir var með 12 varin skot í marki ÍR og Hildur Einarsdóttir tvö skot varin.

Sigurinn er mikilvægur fyrir Fram sem verða á heimavelli þegar liðin mætast í leik númer tvö í einvíginu. Fram getur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri í næsta leik.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top