Ótrúlegur endasprettur hjá Harðverjum – Komnir í 1-0 í umspilinu á móti Gróttu
Eyjólfur Garðarsson)

Í dag mættust Grótta og Hörður í undanúrslitum umspils um að komast upp í Olís deildina. Leikið var á Seltjarnarnesi.

Grótta mætti mun ákveðnari og sterkari til leiks í dag. Eftir korters leik voru þeir komnir í 8-4. Harðverjar saumuðu svo vel að þeim stuttu seinna og náðu að minnka muninn í 11-10 þegar 4 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Seinustu 4 mínútur fyrri hálfleiks vann Grótta þann kafla svo 3-0. 14-10 voru hálfleikstölur.

Eftir 7 mínútna leik í seinni hálfleik voru Harðverjar búnir að jafna í 17-17. Þá tók Grótta aftur við sér og komust fljótlega í 23-20 og héldu þá flestir að eftirleikurinn yrði þægilegur fyrir þá. Harðverjar áttu þá virkilega góðan kafla og sneru blaðinu sér í vil. Sigruðu þeir leikinn 28-31. Hreint út sagt ótrúlegur lokasprettur hjá þeim og þeir komnir í 1-0 í einvíginu. Eitthvað sem ekki margir bjuggust við.

Hjá Gróttu var Hannes Pétur Hauksson með 15 bolta varða. Sæþór Atlason skoraði 6 mörk.

Hjá Herði voru Hermann Alexander og Stefán Freyr með 16 bolta varða. Japaninn Kei Anegayama skoraði 6 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top