Sannfærandi sigur Stjörnustúlkna á móti FH í umspilinu
Sævar Jónasson

Í dag mættust Stjarnan og FH í undanúrslitum umspils um að komast upp í Olís deild kvenna. Leikið var í Garðabæ.

Stjörnustúlkur mættu mjög ákveðnar til leiks og ljóst að þær ætluðu sér ekki að vera neitt værukærar eða með neitt vanmat. Komust þær fljótt í 6-1. Voru þær mest megnis 4-6 mörkum yfir allan fyrri hálfleikinn. Þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks var staðan 15-10.

Eftir korter í seinni hálfleik var staðan orðin 20-10 og FH stelpur ekki búnar að ná að skora í allan þann tíma. Mest komust Stjörnu stelpur 11 mörkum yfir. Lokatölur leiksins urðu svo 27-18 fyrir Stjörnuna. Gríðarlega sannfærandi og öruggur sigur hjá þeim. Léku þær vel og leiða núna 1-0 í einvíginu.

Hjá Stjörnunni var Natasja Hammer með 10 mörk. Hrafnhildur Þorleifs varði svo 13 skot.

Hjá FH var Thelma Dögg Einarsdóttir með 5 mörk. Sonja Szöke varði 17 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top