Við settum okkur í samband við Valgerði Ýr Þorsteinsdóttur fyrirliða HK sem fór upp í Olís deildina nú á dögunum og við spurðum hana aðeins út í tímabilið og hvernig hún gerir það upp. Valgerður spilaði mjög vel með HK liðinu í vetur og dró liðið áfram með reynslu sinni og klókindum. "Tímabilið sem er að baki var virkilega skemmtilegt og lærdómsríkt. Hópurinn er frábær blanda af reyndum leikmönnum og metnaðarfullum yngri leikmönnum sem vilja ná langt, og það skilar sér í góðu andrúmslofti og sterkri liðsheild" "Það er mikill metnaður innan félagsins til þess að vera í fremstu röð og auðvitað með allt þetta góða yngri flokka starf að þá eigum við sem klúbbur að vera með lið í efstu deild. Þegar Hilmar tók við liðinu setti hann strax fram skýrt þriggja ára plan með það að markmiði að koma liðinu upp í efstu deild. Ég kom auðvitað bara inn í hópinn síðasta haust og hef kannski fyrst og fremst reynt að leggja mitt af mörkum með því að koma meiri ró og yfirvegun inn í sóknarleik liðsins ásamt því að ýta undir styrkleikana hjá öðrum leikmönnum. Það var svo sérstaklega sætt að klára verkefnið á heimavelli í lok tímabilsins, sérstaklega eftir tvö töp gegn Gróttu fyrr í vetur. Það hefði auðvitað verið virkilega svekkjandi að komast ekki beint upp með einungis fjögur töpuð stig allt tímabilið" En eru skórnir komnir upp í hilluna eða ætlar þú að halda áfram að spila? "Við fjölskyldan eyðum miklum tíma upp í Kór saman, en við Leó erum með tvær ungar stelpur sem elska að dröslast með okkur á æfingar og það er bara oftast erfitt að ná börnunum heim í háttinn. En auðvitað væri þetta aldrei hægt án þess að vera með sterkt bakland í kringum sig af systkinum, ömmum og öfum. Varðandi næsta tímabil er margt enn í vinnslu. Þetta er auðvitað mikil skuldbinding samhliða fullu starfi og fjölskyldulífi, eins og margir þekkja. En mér líst mjög vel á Dag þjálfara og þær áherslur sem hann hyggst innleiða"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.