Hanna Guðrún semur við Fram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handknattleiksdeild Fram hefur samið við Hönnu Guðrúnu Hauksdóttur um að leika með liðinu á komandi tímabili. Hanna Guðrún, sem er fædd árið 2005, kemur til félagsins frá Stjörnunni þar sem hún er uppalin.

,,Hanna er efnilegur leikmaður sem spilar í stöðu vinstri skyttu og er jafnframt mjög öflugur varnarmaður. Hún mun styrkja leikmannahóp Fram verulega fyrir komandi verkefni," segir í tilkynningunni frá Fram.

Í tilkynningunni frá Fram segir jafnframt að Hanna eigi sterkar rætur í Fram, en langafi hennar, Hilmar Guðlaugsson, var formaður félagsins á árunum 1978–1986. Afi hennar, Bjarni P. Magnússon, var einnig formaður körfuknattleiksdeildar Fram um árabil. Þá er ömmubróðir hennar Atli Hilmarsson, fyrrum leikmaður og þjálfari Fram.

Móðursystir Hönnu, Jóna Hildur Bjarnadóttir var formaður Almenningsíþróttadeildar um árabil og heitir litli speglasalurinn okkar í höfuðið á henni, Jónusalur.

,,Fram býður Hönnu Guðrúnu hjartanlega velkomna til félagsins og hlakkar til að fylgjast með henni í bláu treyjunni."

Hanna Guðrún á þó enn eftir að klára tímabilið með Stjörnunni en Stjarnan leikur í umspili um laust sæti í Olís-deildinni og mætir FH í undanúrslitum umspilsins sem hefst á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top