Rosalega stoltur af liðinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, var ánægður með hvernig liðið mætti til leiks í síðasta deildarleik tímabilsins þegar Valur vann ÍBV 30-28.

Valur voru með góða forystu í hálfleik en í síðari hálfleik þá missti liðið niður forystuna og ÍBV var komið yfir þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum og sagði Anton hafa alltaf verið á leiðinni að taka leikhlé til að stoppa áhlaupið. "Það kom svolítið óðagot á okkur og við slúttuðum nokkrum sóknum of snemma, tæknifeilar og fleira en við náum að koma til baka og það sýndi styrkleika".

Anton er gríðarlega ánægður með liðsheildina hjá liðinu í allan vetur og viðurkenndi að tímabilið væri búið að vera töff með öll þessi meiðsli sem liði hafi lent í en hann sé rosalega stoltur af stelpunum að hafa klárað þennan titil.

Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top