Gummersbach hafði betur gegn Hannover-Burgdorf 33-27 í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld í þriðja og síðasta leik dagsins í 26.umferð þýsku deildarinnar. Gummersbach hefur unnið alla leiki liðsins á þessu ári en Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Sigurinn í dag var sjötti sigur liðsins í þýsku úrvalsdeildinni eftir að Evrópumótinu lauk í byrjun febrúar. Gummersbach er í 4. sæti deildarinnar með 37 stig eftir 25 leiki en liðið á leik inni. Landsliðsmaðurinn, Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk og Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach í leiknum en Sigvaldi Björn Guðjónsson gengur í raðir Hannover-Burgdorf frá Kolstad í sumar. Þýski landsliðsmaðurinn, Miro Schluroff var markahæstur í liði Gummersbach með níu mörk úr tíu skotum. Hjá Hannover Burgdorf var liðsfélagi Schluroff í þýska landsliðinu, Renars Uscins markahæstur með sjö mörk ásamt August Baskar Pedersen. ÓMAR INGI, GÍSLI ÞORGEIR OG ELVAR ÖRN FÆRÐUST SKREFI NÆR ÞÝSKA MEISTARATITLINUM HAUKUR MEÐ 15 MÖRK OG 8 STOÐSENDINGAR Í SIGRI RHEIN-NECKAR LÖWEN

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.