Jóhanna Margrét Sigurðardóttir markahæsti leikmaður Hauka í Olís-deild kvenna var ekki í leikmannahópi Hauka er liðið vann þriggja marka sigur á KA/Þór 27-24 í fyrsta leik liðanna í 6-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Liðin mætast aftur á miðvikudagskvöldið fyrir norðan klukkan 18:00. Ástæðan fyrir fjarveru Jóhönnu Margrétar í leiknum á laugardaginn er einföld. Jóhanna fékk höfuðhögg í síðasta leik liðsins gegn Stjörnunni í lokaumferð Olís-deildarinnar sem endaði með 26-26 jafntefli. Í samtali við mbl.is sagði Jóhanna að hún tæki einn dag í einu og vissi ekki hvort hún yrði leikfær í leiknum á miðvikudaginn. Eins og fyrr segir var Jóhanna Margrét markahæst í liði Hauka í Olís-deildinni í vetur með 148 mörk en hún gekk í raðir Hauka fyrir tímabilið eftir að hafa spilað í Svíþjóð síðustu ár. Rætt var um úrslitakeppnina í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.