
Dregið var í undankeppni EM karla árið 2028 í kvöld. Athöfnin fór fram í Lissabon í Portúgal en mótið fer fram þar árið 2028 ásamt Spáni og Sviss sem verða gestgjafar með Portúgölum. Íslenska landsliðið dróst í riðil 3 með Serbum, Úkraínu og Eistum. Tvö efstu liðin í riðlinum komast á Evrópumótið 2028. Leikjaniðurröðun liggur ekki fyrir að svo stöddu en við munum færa ykkur fréttir af því um leið og hún er klár. ,,Þetta er fínn riðill. Þetta hefði alveg getað verið betra og á sama tíma hefði þetta getað verið verra. Við erum í riðli með Serbum sem er auðvitað alvöru lið þó svo að þeir hafi ekki komist áfram í riðlakeppninni á EM þá er þetta frábært lið, vel mannað og með góðan þjálfara. Það verður erfitt að mæta þeim," sagði Snorri Steinn Guðjónsson í samtali við Handkastið sem segir mikilvægt að Ísland vinni riðilinn. ,,Það hefur sýnt sig að það er mikilvægt að vinna riðilinn en fyrirfram er Serbía líklegasta þjóðin sem við verðum að berjast við um að vinna riðilinn. Ég geri ráð fyrir að við séum betri en hinar þjóðirnar án þess að hljóma hrokafullur." Undankeppnin hefst í byrjun nóvember og lýkur í maí 2027. 1. umferðin verður leikin dagana 4. og 5. nóvember 2026 og 2. umferðin fer fram 7. og 8. nóvember 2026. ,,Eins og við skiljum þetta þá byrjum við á Úkraínu heima og Eistlandi úti og ég veit að HSÍ er að vinna í því að raða niður leikdögunum. Það liggur örugglega fyrir mjög fljótlega hvenær leikirnir fara fram." Hér að neðan má sjá alla riðlanna í undankeppni EM. 1.riðill: Króatía, Holland, Litáen, Finnland.
2.riðill: Noregur, Austurríki, Georgía, Tyrkland.
3.riðill: Ísland, Serbía, Úkraína, Eistland.
4.riðill: Ungverjaland, Færeyjar, Svartfjallaland, Kósovó.
5.riðill: Slóvenía, Tékkland, Bosnía, Ísrael.
6.riðill: Frakkland, Pólland, Rúmenía, Lettland.
7.riðill: Þýskaland, Ítalía, Belgía, Slóvakía.
8.riðill: Svíþjóð, Norður Makedónía, Grikkland, Lúxemborg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.